Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra. Gissur mun starfa áfram sem sérfræðingur í ráðuneytinu. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir einnig að félags- og…
Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra. Gissur mun starfa áfram sem sérfræðingur í ráðuneytinu. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir einnig að félags- og húsnæðismálaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Ásdís Halla Bragadóttir hafi gert með sér samkomulag um flutning Ásdísar Höllu í embætti ráðuneytisstjóra félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins en heiti þess verður breytt í félags- og húsnæðismálaráðuneyti 1. mars nk.