Aðgerðir ESA í október sl. beindust ekki eingöngu að fjárfestingafélaginu Skel vegna Lyfjavals, heldur einnig að Lyfjum og heilsu, sem er í óskyldri eigu. Félögin hafa kært húsleitirnar til EFTA-dómstólsins en af gögnum kæranna má ráða að ESA gruni…
Aðgerðir ESA í október sl. beindust ekki eingöngu að fjárfestingafélaginu Skel vegna Lyfjavals, heldur einnig að Lyfjum og heilsu, sem er í óskyldri eigu.
Félögin hafa kært húsleitirnar til EFTA-dómstólsins en af gögnum kæranna má ráða að ESA gruni félögin um ólögmætt samráð sem snýr að markaðsskiptingu í tveimur verslunarkjörnum; í Mjódd og Glæsibæ.
Lyf og heilsa reka í dag Apótekarann í Mjódd en Lyfjaval var þar áður til húsa. Lyfjaval rekur verslun í Glæsibæ en þar var Apótekarinn áður til húsa.
» Viðskiptamogginn