Launastefna þar sem áhersla er lögð á hækkun lægstu launa leitar upp launastigann, enda benda gögnin til þess að launavísitalan þróist frekar með sama hætti og hækkun lægstu taxta en kostnaðarmati kjarasamninga.

Vinnumarkaður

Sigríður Margrét Oddsdóttir

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Nú þegar ný ríkisstjórn leitar leiða til að auka aðhald í ríkisrekstri, styðja við verðbólgumarkmið Seðlabankans og stuðla að lækkun vaxta er vert að horfa yfir sviðið með víðri linsu og meta hvaða umbætur myndu þjóna þeim markmiðum. Eitt af því sem máli skiptir í þessu samhengi er hvernig umsvifamikil tilfærslukerfi þróast yfir tíma. Er til að mynda eðlilegt að bætur almannatrygginga fylgi launaþróun?

Laun eru endurgjald fyrir verðmætasköpun. Bætur almannatrygginga eiga hins vegar að tryggja framfærslu. Því er ólíku saman að jafna. Ef spyrða á saman launaþróun á vinnumarkaði og bætur almannatrygginga verður að hafa í huga að þróun launavísitölu hefur sögulega verið

...