Gísli Gottskálk Þórðarson verður sjötti Íslendingurinn sem spilar í pólsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann stóðst læknisskoðun hjá toppliðinu Lech Poznan í gær og skrifaði að henni lokinni undir samning til fjögurra og hálfs árs.
Víkingar höfðu áður samþykkt tilboð Lech í Gísla en talið er að það nemi um 80 milljónum króna.
Hann verður annar íslenski leikmaðurinn í sögu Lech en Aron Jóhannsson spilaði með liðinu tímabilið 2020-21, lauk þar ferlinum erlendis og gekk til liðs við Valsmenn í kjölfarið.
Davíð Kristján Ólafsson leikur með Cracovia, sem er í fimmta sæti deildarinnar. Áður lék Böðvar Böðvarsson með Jagiellonia (2018-2021), Adam Örn Arnarson með Górnik Zabrze (2018-2020) og Daníel Leó Grétarsson með Slask Wroclaw
...