Ljósvakahöfundur er andlegt flak eftir að hafa horft á þáttaröð um nornir, Witches: Truth Behind the Trials, á National Geographic. Þættirnir eru sex og fjalla um nornaréttarhöld í Evrópu á öldum áður
Galdrar Réttarhöldin í Salem voru óhugguleg.
Galdrar Réttarhöldin í Salem voru óhugguleg. — Wikipedia/Howard Pyle

Kolbrún Bergþórsdóttir

Ljósvakahöfundur er andlegt flak eftir að hafa horft á þáttaröð um nornir, Witches: Truth Behind the Trials, á National Geographic. Þættirnir eru sex og fjalla um nornaréttarhöld í Evrópu á öldum áður.

Þarna var saklaust fólk sakað um að kalla bölvun yfir einstaklinga. Jafnvel börn bentu ásakandi á fullorðna. Sakborningar, sem voru yfirleitt konur, játuðu venjulega og þá eftir skelfilegar pyntingar. Einhverjir stóðu þó allan tímann fast á sakleysi sínu en dóu samt.

Það dró úr manni allan mátt við áhorfið. Ekki er hægt að tala um neitt upplífgandi í sambandi við þættina nema þá helst það að langfæstir þeirra sem dæmdir voru fóru lifandi á ­bálið. Meira að segja þeim refsiglöðustu fannst refsingin að deyja á báli ómannúðleg. Þeir sem dæmdir voru sekir voru hálshöggnir og líkinu síðan kastað á bál.

Fræðimaður sem rætt var við í þáttunum varaði við því dæma

...