Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Allir þingmenn landsbyggðarkjördæmanna, þ.e. Suðurkjördæmis, Norðausturkjördæmis og Norðvesturkjördæmis, fá greiddar 185.500 krónur á mánuði í húsnæðis- og dvalarkostnað skv. reglum Alþingis um þingfararkostnað. Þetta kemur fram í svari skristofu Alþingis við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Hér er um að ræða 27 þingmenn; 10 þingmenn Suðurkjördæmis, 10 þingmenn Norðausturkjördæmis og 7 þingmenn Norðvesturkjördæmis.
Fjárhæðin er ætluð til að standa undir húsnæðis- og dvalarkostnaði á höfuðborgarsvæðinu eða sama kostnaði í kjördæminu, eigi viðkomandi þingmaður heima á höfuðborgarsvæðinu. Þingmaður sem á heimili utan höfuðborgarsvæðis og þiggur greiðslur fyrir daglegar ferðir milli heimilis og Reykjavíkur um þingtímann fær
...