Miklu máli skiptir að eignir séu ávaxtaðar samkvæmt fjárfestingarstefnu þannig að hægt sé að mæta framtíðarskuldbindingum.
Albert Þór Jónsson
Albert Þór Jónsson

Albert Þór Jónsson

Framsýni þeirra sem komu lífeyriskerfinu af stað fyrir um fimm áratugum hefur reynst mikill gæfuvaldur fyrir alla landsmenn og mikilvægi þess á flestum sviðum þjóðlífsins er umtalsvert. Mikilvægustu styrkleikar íslenska lífeyriskerfisins eru full sjóðsöfnun, hagstæð aldursdreifing og mikil atvinnuþátttaka. Kerfið byggir á fullri sjóðsöfnun að stærstum hluta en margar þjóðir eru með gegnumstreymiskerfi þar sem treyst er á framtíðarskatttekjur viðkomandi landa.

Íslenskir lífeyrissjóðir þurfa að taka strategískar ákvarðanir varðandi áhættudreifingu með auknum erlendum fjárfestingum, en þannig geta þeir flutt áhættu yfir í önnur hagkerfi til lengri tíma og þannig náð fram ásættanlegri áhættudreifingu. Á næstu árum má búast við að fjárfestingar verði að stærstum hluta í erlendum verðbréfum þannig að markmið um fjárfestingarstefnu verði

...