Leikarinn Villi Neto hefur vakið athygli á TikTok eftir að hafa rakað af sér sína einkennandi mottu fyrir hlutverk í leikritinu Ungfrú Ísland. „Það er eins gott að Ungfrú Ísland verði gott leikrit því ég þurfti að raka af mér mottuna fyrir það,“…
— Skjáskot/TikTok

Leikarinn Villi Neto hefur vakið athygli á TikTok eftir að hafa rakað af sér sína einkennandi mottu fyrir hlutverk í leikritinu Ungfrú Ísland. „Það er eins gott að Ungfrú Ísland verði gott leikrit því ég þurfti að raka af mér mottuna fyrir það,“ segir hann í myndbandi þar sem hann sýnir nýja útlitið, sem hann viðurkennir að hann eigi erfitt með að venjast. „Þetta er ekki Villi Netó, þetta er Sveppi Krón­an,“ sagði einn fylgj­andi, á meðan ann­ar, með svipaðar hug­mynd­ir, spurði hvort þetta væri Villi Bón­us. Leikritið verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 16. janúar. Nánar á K100.is.