Norska knattspyrnufélagið Brann hefur boðið Frey Alexanderssyni starf sem þjálfari karlaliðs félagsins. Staðarmiðillinn Bergens Tidende greindi frá í gær. Freyr ræddi við félagið í vikunni og heillaði forráðamenn þess. Ekki er búið að ganga frá ráðningunni en miðillinn segir félagið vera mjög nálægt því að ráða Frey til starfa. Freyr var einn þriggja sem ræddu við KSÍ um starf landsliðsþjálfara karla í vikunni. Arnar Gunnlaugsson ræddi einnig við KSÍ.