Björgun Björgunarskipið Sigurvon frá Siglufirði kom með bátinn í togi til hafnar í Ólafsfirði. Var útkallið á hæsta forgangi en betur fór en á horfðist.
Björgun Björgunarskipið Sigurvon frá Siglufirði kom með bátinn í togi til hafnar í Ólafsfirði. Var útkallið á hæsta forgangi en betur fór en á horfðist. — Ljósmynd/Landsbjörg

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá litlum fiskibát sl. laugardag. Báturinn var staddur nálægt landi, norðarlega í mynni Ólafsfjarðar, og hafði fengið í skrúfuna.

Björgunarsveitin Tindar í Ólafsfirði og björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði voru kölluð út á mesta forgangi. Um tíma leit út fyrir að bátinn myndi reka í strand. Var aðgerðastjórn virkjuð á Akureyri, að því er fram kom í tilkynningu frá Landsbjörg.

Björgunarmenn frá Tindum héldu út á tveimur björgunarþotum og komu taug um borð í bátinn. Skipverji hafði þá varpað akkeri sem náði haldi í botni þannig að ekki var lengur yfirvofandi hætta á strandi. Næst var báturinn um 280 metra frá landi og þykir ljóst að illa hefði getað farið.

Skömmu síðar kom björgunarskipið Sigurvin á vettvang og tók bátinn í tog og dró inn

...