Leikstjórarnir, handritshöfundarnir og framleiðendurnir Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson ræða nýjustu kvikmynd sína Guðaveigar í Dagmálum. Þeir félagar hafa framleitt og eða leikstýrt sex gamanmyndum á síðustu misserum en ekki notið…
Dagmál Þeir Örn Marinó og Þorkell segja farir sínar ekki sléttar af KMÍ.
Dagmál Þeir Örn Marinó og Þorkell segja farir sínar ekki sléttar af KMÍ.

Leikstjórarnir, handritshöfundarnir og framleiðendurnir Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson ræða nýjustu kvikmynd sína Guðaveigar í Dagmálum. Þeir félagar hafa framleitt og eða leikstýrt sex gamanmyndum á síðustu misserum en ekki notið velvildar Kvikmyndamiðstöðvar Íslands sem úthlutar styrkjum í slík verkefni.

Í umsögn um síðustu styrkbeiðni fylgdi með rökstuðningur frá KMÍ að fyrir utan ófyndið handritið væru þeir félagar enn að smætta og jaðarsetja konur í myndum sínum. Þessu hafna þeir alfarið og vísa til þess að konur í þeirra myndum hafi verið „boss women“ á meðan karlarnir hafi að mestu verið vitleysingar sem hægt er að hlæja að. Báðir leikstjórarnir, sem framleitt hafa myndir sem fengið hafa góða aðsókn, gefa úthlutunarferli KMÍ falleinkunn.