Heilsumarkþjálfinn Erla Guðmundsdóttir segir að síðustu ár hafi fækkað í hópi þeirra Íslendinga sem strengja sér áramótaheit. Þá benda erlendar rannsóknir einnig til þess að strengd áramótaheit víða um heim eigi sér ekki langa lífdaga, heldur renni…
Heitstrenging Erla Guðmundsdóttir segir litlu skrefin árangursríkust.
Heitstrenging Erla Guðmundsdóttir segir litlu skrefin árangursríkust.

Heilsumarkþjálfinn Erla Guðmundsdóttir segir að síðustu ár hafi fækkað í hópi þeirra Íslendinga sem strengja sér áramótaheit. Þá benda erlendar rannsóknir einnig til þess að strengd áramótaheit víða um heim eigi sér ekki langa lífdaga, heldur renni þau gjarnan út í sandinn á fyrstu tveimur vikum nýs árs, sér í lagi annan föstudag á nýju ári.

„Ég held að okkur hætti til að setja okkur óraunhæf markmið,“ segir Erla um orsökina og telur mikilvægt að heitstrengingar í tengslum við heilsu séu gerðar í smáum skrefum.

„Það er svo mikilvægt að brjóta stóra markmiðið niður í mörg smærri markmið og njóta ferðalagsins.“

Að mati Erlu eru dagar áramótaheita ekki endilega taldir þrátt fyrir að margt bendi til úthaldsleysis. Lífsstílsbreytingu má gera hvaða tíma árs sem er.