Jón Erik Sigurðsson, landsliðsmaður í alpagreinum, hefur komist á verðlaunapall á tveimur FIS-mótum á Ítalíu á síðustu dögum. Á sunnudaginn varð Jón Erik annar á stórsvigsmóti og fékk 43,73 FIS-punkta. Í fyrradag náði hann síðan þriðja sæti á öðru móti og fékk 43,11 FIS-punkta, sem er hans næstbesti árangur. Hann hefur flogið upp heimslistana í vetur og farið upp um rúmlega 600 sæti í stórsvigi og rúmlega 400 sæti í svigi.