Ný sýning, sem ber heitið Sjónarvottur, verður opnuð á morgun, föstudaginn 17. janúar, kl. 18 í BERG Contemporary. Hún saman­stendur af nýjum ljósmyndaverkum eftir þær Hallgerði Hallgrímsdóttur og Ninu Zurier
Gervilandslag Verk eftir Ninu Zurier.
Gervilandslag Verk eftir Ninu Zurier.

Ný sýning, sem ber heitið Sjónarvottur, verður opnuð á morgun, föstudaginn 17. janúar, kl. 18 í BERG Contemporary. Hún saman­stendur af nýjum ljósmyndaverkum eftir þær Hallgerði Hallgrímsdóttur og Ninu Zurier. Segir í tilkynningu að verk Hallgerðar séu hluti af seríu sem ber titilinn „Ósýnilegt stríð / Sýnilegt stríð“ og Nina sýni verk úr seríu sinni „Gervi­landslag“. Sýningin, sem stendur til 22. febrúar, er hluti af Ljósmynda­hátíð Íslands sem hefur göngu sína í dag.