Ísland Hafsteinn Óli Ramos skýtur að marki KA í leik með Gróttu í vetur.
Ísland Hafsteinn Óli Ramos skýtur að marki KA í leik með Gróttu í vetur. — Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Hafsteinn Óli Ramos ætlar ekki að syngja íslenska þjóðsönginn fyrir leik Íslands og Grænhöfðaeyja á heimsmeistaramótinu í handbolta í Zagreb í kvöld.

Hafsteinn er í fyrsta sinn í hópi Grænhöfðeyinga á stórmóti en hann lék áður með yngri landsliðum Íslands og spilar með Gróttu í úrvalsdeildinni.

„Ég þarf að passa mig á að syngja ekki með í þjóðsöngnum því þá gæti fokið í liðsfélaga mína. Þetta snýst um að vanda sig og halda kjafti,“ sagði Hafsteinn þegar Morgunblaðið spurði hann um þessa sérstöku stund.

„Ég von­ast auðvitað til þess að fá ein­hverj­ar mín­út­ur í þess­um leik. Ég er bú­inn að fylgj­ast lengi með þess­um strák­um í sjón­varp­inu og á stór­mót­um. Ég spilaði líka með ein­hverj­um þeirra í yngri landsliðunum. Það verður virki­lega gam­an að mæta þeim á stærsta sviðinu,“ sagði Haf­steinn Óli.