Landsnet endurgreiðir sex raforkuframleiðendum samtals um þrjá milljarða króna vegna svokallaðs innmötunargjalds, þar af Landsvirkjun 2,4 milljarða.
Gjaldið var hluti af flutningsgjöldum Landsnets og var lagt á í byrjun árs 2022. Það var innheimt í 18 mánuði, fram til september 2023. Hæstiréttur Íslands úrskurðaði gjaldtökuna ólögmæta 5. júní sl. og staðfesti þar með niðurstöðu fyrri dómstiga, að því er Landsvirkjun segir í tilkynningu.
„Landsvirkjun endurgreiðir viðskiptavinum sínum í dag þá upphæð sem rukkuð var á tímabilinu sem innmötunargjaldið var innheimt. Viðskiptavinum okkar hefur verið tilkynnt um endurgreiðsluna og jafnframt að hér sé einungis um að ræða höfuðstól, því enn er verið að semja um vaxtagreiðslur,“ segir enn fremur í tilkynningunni. Þá kemur fram að Landsvirkjun hafi mótmælt gjaldtöku Landsnets frá upphafi og hafi talið að
...