Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, hefur sagt af sér sem 1. varaforseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og vikið úr miðstjórn þess. Þar sat hann í umboði félagsmanna VR, þar sem hann var formaður
Afsögn Ragnar Þór Ingólfsson, nýkjörinn þingmaður Flokks fólksins.
Afsögn Ragnar Þór Ingólfsson, nýkjörinn þingmaður Flokks fólksins. — Morgunblaðið/Ágúst

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, hefur sagt af sér sem 1. varaforseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og vikið úr miðstjórn þess. Þar sat hann í umboði félagsmanna VR, þar sem hann var formaður.

Nokkur styr stóð um það þegar Ragnar boðaði framboð sitt fyrir Flokk fólksins sl. haust hvort hann héldi áfram störfum í launþegahreyfingunni. Úr varð að hann fór í tímabundið leyfi frá VR í lok október, en lét af embætti 3. desember.

Ragnar féll af launaskrá ASÍ þegar hann fór í framboð, en að kosningum loknum

...