Ísland hóf heimsmeistaramót karla í handknattleik í gærkvöld með öruggum sigri gegn Grænhöfðaeyjum, 34:21, í Zagreb Arena í höfuðborg Króatíu. Þar sem Slóvenía vann yfirburðasigur á Kúbu í fyrri leik umferðarinnar, 41:19, er ljóst að íslenska liðið…
Í Zagreb
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Ísland hóf heimsmeistaramót karla í handknattleik í gærkvöld með öruggum sigri gegn Grænhöfðaeyjum, 34:21, í Zagreb Arena í höfuðborg Króatíu.
Þar sem Slóvenía vann yfirburðasigur á Kúbu í fyrri leik umferðarinnar, 41:19, er ljóst að íslenska liðið á frekar auðvelt verkefni fyrir höndum gegn Kúbu annað kvöld og Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari ætti að geta hvílt lykilmenn talsvert. Síðan hefst baráttan fyrir alvöru með leiknum við Slóvena á mánudagskvöldið.
Íslenska liðið stakk af í fyrri hálfleik þegar það komst í 8:2 og síðan í 16:7 en 18:8 var staðan í hálfleik. Fyrirliðinn Elliði Snær Viðarsson fékk rauða spjaldið fyrir að slá Edmilson Araujo í andlitið undir lok hálfleiksins og
...