Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur skráð landsliðsfyrirliðann Aron Pálmarsson í leikmannahóp Íslands á HM. Aron hefur verið frá keppni vegna meiðsla og lék ekkert gegn Svíþjóð fyrir mótið og var ekki í hópnum gegn Grænhöfðaeyjum í fyrsta leiknum á HM. Hann hefur æft með liðinu síðustu daga og virðist hafa náð sér af meiðslunum. Aron má því vera í leikmannahópnum gegn Kúbu í kvöld.