Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Kænugarðsstjórn virðist nú eiga fullt í fangi með að fá nýliða inn í herinn. Á sama tíma hefur gengið illa að taka hermenn frá víglínunni og veita þeim kærkomið leyfi. Þessi staða hefur aukið mjög álag á herafla Úkraínu. Í ljósi þessa hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum, sem jafnframt eru helsti stuðningur Úkraínustjórnar í baráttunni við innrásarlið Rússlands, þrýst á um lækkun lágmarksaldurs til að gegna herþjónustu. Viðmiðið nú er 25 ár en Pentagon, varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, leggur til 18 ár.
Sú aðgerð að lækka aldur niður í 18 ár yrði ekki einsdæmi, hvorki á Vesturlöndum né annars staðar. Sem dæmi má nefna að í Rússlandi nær herskylda til þeirra sem náð hafa 18 ára aldri. Sérfræðingar hafa þó lengi varað við því að senda svo unga einstaklinga í vopnuð átök. Þeir séu mun líklegri
...