Grensásvegur Áform eru um að bæta við einni hæð ofan á húsið í miðjunni.
Grensásvegur Áform eru um að bæta við einni hæð ofan á húsið í miðjunni. — Morgunblaðið/sisi

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í ósk um að hækka húsið Grensásveg 24 um eina hæð. Áformað er að reka gistiheimili á efri hæðum hússins en atvinnustarfsemi verði á jarðhæð.

Húsið á Grensásvegi 24 er tvílyft hús, byggt árið 1954 samkvæmt fasteignaskrá. Það er áfast húsunum á Grensásvegi 22 og Grensásvegi 26 sem eru þrílyft steypt hús og byggð sama ár. Eftir stækkun verða því öll þrjú húsin jafnhá.

Húsin standa á mótum Miklubrautar og Grensásvegar og eru áberandi í borgarlandslaginu. Í þessum þremur húsum hefur margvísleg starfsemi verið rekin í gegnum árin. Í miðjuhúsinu er í dag skráð gistiheimilið Guesthouse Summerday.

Fram kemur í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa að Grensásvegur 24 er skilgreindur nærþjónustukjarni, Grensásvegur (suður) við Miklubraut,

...