Öryggisráð Ísraels samþykkti í gær samkomulag um vopnahlé á Gasa og lausn gísla. Lagði ráðið til við ríkisstjórn Ísraels að vopnahléið yrði samþykkt eftir að hafa farið yfir allar hliðar er snúa að öryggis- og mannúðarmálum sem og pólitíska stöðu málsins.
Ríkisstjórnarfundur hófst í gær en fregnir af niðurstöðu hans höfðu ekki borist þegar Morgunblaðið fór í prentun á tólfta tímanum. Hafði ríkisstjórnin þá rætt samkomulagið í sex klukkustundir og var klukkan farin að ganga tvö um nótt í Ísrael.
Samkomulagið sem um ræðir á að koma til framkvæmda í þremur áföngum. Um 60 gíslar eru enn taldir á lífi af þeim 251 sem Hamas rændi í hryðjuverkunum 7. október 2023. Í fyrsta áfanganum eiga Hamas-samtökin að sleppa 33 af þeim gíslum sem samtökin tóku 7. október, gegn því að Ísraelar láti lausa um þúsund manns sem dvelja í ísraelskum fangelsum. Gæti fyrstu gíslunum verið sleppt úr haldi strax á morgun, sunnudag. Samhliða fangaskiptunum mun Ísraelsher draga sig
...