Dýpkunarframkvæmdir hófust á Þórshöfn síðastliðið sumar og fylgdi þeim mikill uppgröftur á efni. Ísfélag Vestmannaeyja ákvað að nýta þetta efni sem farg á byggingarsvæði við höfnina þar sem félagið reisir stóra frystigeymslu, að grunnfleti um 2.070 m2
Þórshöfn Nýi hólminn í höfninni, sem hannaður var eins og fiskur, séð úr lofti, varð til úr efni úr dýpkuninni.
Þórshöfn Nýi hólminn í höfninni, sem hannaður var eins og fiskur, séð úr lofti, varð til úr efni úr dýpkuninni. — Ljósmynd/Guðjón Gamalíelsson

Líney Sigurðardóttir

Þórshöfn

Dýpkunarframkvæmdir hófust á Þórshöfn síðastliðið sumar og fylgdi þeim mikill uppgröftur á efni. Ísfélag Vestmannaeyja ákvað að nýta þetta efni sem farg á byggingarsvæði við höfnina þar sem félagið reisir stóra frystigeymslu, að grunnfleti um 2.070 m2.

Bygging hennar er nú komin vel á veg ásamt tengibyggingu sem er rúmir 600 fermetrar. Byrjað er að reisa stálgrind hússins sem er um 17 metra há og gengur það mjög vel en fyrirtækið Borgarafl sér um það verk.

Þörf fyrir meira frystirými hefur aukist mjög með árunum og leiguverð á frystigeymslum erlendis hefur rokið upp, m.a. vegna almennrar hækkunar raforku.

Nýr viðlegukantur fyrir smábáta er líka í byggingu þar

...