Kauphöll Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Kauphöll Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Drög að uppgjöri Arion banka fyrir síðasta fjórðung 2024 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er afkoma fjórðungsins um 8,3 milljarðar króna, sem leiðir til 13,2% arðsemi eiginfjár á árinu 2024.

Afkoma fjórðungsins er um 28% yfir meðaltalsspá greiningaraðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallarinnar sem birt var í gær.

Fram kemur að munurinn liggi helst í betri afkomu af verðbréfum samstæðunnar og jákvæðari virðisbreytingu lánabókar en greiningaraðilar gera almennt ráð fyrir.

Tekjur af kjarnastarfsemi, samanlagðar hreinar vaxtatekjur, hreinar þóknanatekjur og hreinar tekjur af tryggingastarfsemi eru að mestu í takt við spár greiningaraðila.

Tekið er fram í tilkynningunni

...