Sókn Hákon Arnar Haraldsson sækir að marki Liverpool á Anfield í gærkvöldi en Skagamaðurinn átti stóran þátt í jöfnunarmarki franska liðsins.
Sókn Hákon Arnar Haraldsson sækir að marki Liverpool á Anfield í gærkvöldi en Skagamaðurinn átti stóran þátt í jöfnunarmarki franska liðsins. — AFP/Paul Ellis

Hákon Arnar Haraldsson lék allan leikinn með Lille þegar liðið tapaði naumlega fyrir Liverpool í 7. umferð Meistaradeildarinnar í knattspyrnu á Anfield í Liverpool í gær. Leiknum lauk með 2:1-sigri Liverpool en Harvey Elliott skoraði sigurmark leiksins á 67. mínútu.

Mohamed Salah kom Liverpool yfir á 34. mínútu eftir frábæra stungusendingu Curtis Jones en Salah setti boltann snyrtilega framhjá Lucas Chevalier í marki Lille.

Aissa Mandi bakvörður Lille fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt á 59. mínútu en það kom ekki að sök því Jonathan David jafnaði metin fyrir Lille þremur mínútum síðar. David átti þá fast skot úr teignum eftir að varnarmenn Liverpool hefðu hent sér fyrir skot Hákons Arnars og boltinn söng í netinu.

Elliott tryggði Liverpool

...