Barnaháskólasjúkrahús Fíladelfíu sem starfrækir Center for Applied Genomics, samstarfsfyrirtæki ATx.
Barnaháskólasjúkrahús Fíladelfíu sem starfrækir Center for Applied Genomics, samstarfsfyrirtæki ATx.

Íslenska erfða- og líftæknifyrirtækið Arctic Therapeutics (ATx) hefur tryggt sér A-fjármögnun (e. Series A) að virði 26,5 milljónir evra, sem samsvarar tæplega fjórum milljörðum íslenskra króna, í kjölfar töluverðrar umframeftirspurnar.

Bæði erlendir og innlendir fjárfestar tóku þátt í fjármögnuninni, þar á meðal EIC Fund, norræna rannsóknarsamstæðan Sanos Group, Kaldbakur, svissneska félagið Cerebrum DAO, bandaríski milljarðamæringurinn Jeffrey Lurie og hópur snemmfjárfesta og meðstofnenda líftæknifélaganna Kerecis og Chemometec, auk íslenskra einka- og fagfjárfesta.

Forstjóri Sanos Group, Jeppe Ragnar Andersen, tekur sæti í stjórn fyrirtækisins fyrir hönd nýrra hluthafa.

Fjármagnið verður fyrst og fremst nýtt til þess að hefja frekari klínískar rannsóknir á tveimur af fremstu lyfjum félagsins til meðferðar við

...