Flokkur fólksins fær ekki styrk úr ríkissjóði í ár enda verða lagaskilyrði ekki uppfyllt í tæka tíð. Samkvæmt lögum skal greiða ríkisstyrki til stjórnmálaflokka fyrir 25. janúar á ári hverju, þ.e. í síðasta lagi á föstudag, og þurfa skilyrði áður að vera uppfyllt.
Formaður flokksins, Inga Sæland, telur flokkinn ekki geta uppfyllt skilyrðin fyrr en að afloknum landsfundi í febrúar.
Ekki hafa borist svör frá fjármálaráðherra um hvort flokknum beri að endurgreiða oftekna styrki liðinna þriggja ára, en Inga segir það ekki standa til. » 4