Skriður komst í gær á viðræður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og sveitarfélaganna. „Þetta var mjög góður fundur og við náðum ágætisárangri í að setja okkur markmið, hvert við ætlum að stefna og hvernig við ætlum að leysa málin. Það var ágætisskriður á fundinum,“ sagði Bjarni Ingimarsson formaður LSS eftir sáttafundinn. Næsti fundur verður á þriðjudag. Félagsmenn í LSS hafa samþykkt verkfall 10. febrúar hafi ekki samist fyrir þann tíma. „Við erum ágætlega bjartsýn eftir þennan fund og vonandi náum við að leysa þetta hratt og vel,“ sagði
...