Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku hefur gefið út greiningu á íslensku krónunni. Þar bendir hann á að krónan hafi verið mjög stöðug allt síðasta ár en styrkst nokkuð undir lok ársins. Styrkinguna megi rekja til fjármagnsflæðis sem tengist…
Gengi Íslenska krónan hefur verið nokkuð stöðug gagnvart evru en vísbendingar eru um að hún sé yfirverðlögð miðað við jafnvægisraungengi.
Gengi Íslenska krónan hefur verið nokkuð stöðug gagnvart evru en vísbendingar eru um að hún sé yfirverðlögð miðað við jafnvægisraungengi. — Simon Maina/AFP

Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku hefur gefið út greiningu á íslensku krónunni. Þar bendir hann á að krónan hafi verið mjög stöðug allt síðasta ár en styrkst nokkuð undir lok ársins.

Styrkinguna megi rekja til fjármagnsflæðis sem tengist yfirtökutilboði JBT í Marel og kaupum erlendra aðila á ríkisbréfum. Það sem Hafsteinn veltir upp í greiningunni er hvort styrkingin sé líkleg til að ganga til baka eða ekki. Styrking krónunnar í lok síðasta árs hafi skýrst af tímabundnu fjármagnsflæði en ekki grundvallarbreytingum á undirstöðum hagkerfisins.

Að mati Hafsteins er gengi krónunnar líklega um 3-5% yfirverðlagt miðað við jafnvægisraungengi. Spá hans gerir ráð fyrir að krónan muni leita í átt að 152-155 á móti evru til að viðhalda sjálfbæru raungengi á árinu.

Í samtali við Morgunblaðið nefnir Hafsteinn: „Þótt ég sé að benda á að krónan sé líklega yfir jafnvægisraungengi eftir styrkinguna í lok síðasta árs er þetta tiltölulega lítið frávik samkvæmt

...