Ellert B. Schram, fv. ritstjóri og þingmaður, lést í fyrrinótt, 85 ára að aldri.

Ellert fæddist í Reykjavík 10. október 1939. Foreldrar hans voru Björgvin Schram, stórkaupmaður í Reykjavík, og Aldís Þorbjörg Brynjólfsdóttir húsmóðir.

Ellert lauk embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1966 og öðlaðist lögmannsréttindi sama ár. Hann var blaðamaður á Vísi, vann á málflutningsskrifstofu Eyjólfs K. Jónssonar og fleiri 1965 og 1966, var skrifstofustjóri borgarverkfræðings 1966-71, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins 1971-79 og 1983-87, alþingismaður Samfylkingarinnar 2007-2009 og fór tvisvar á þing sem varaþingmaður, 2018 og 2019. Hann var ritstjóri Vísis og DV 1980-95, formaður KSÍ 1973-89, forseti ÍSÍ 1991 til 2006.

Ellert var formaður Stúdentaráðs HÍ, SUS 1969-73 og fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Hann sat í

...