Ítalía Kyle Walker kveður England, í það minnsta þar til í sumar.
Ítalía Kyle Walker kveður England, í það minnsta þar til í sumar. — AFP/Paul Ellis

Enski landsliðsmaðurinn Kyle Walker er orðinn leikmaður ítalska knattspyrnuliðsins AC Milan sem gekk í gærkvöld frá lánssamningi um hann við Englandsmeistara Manchester City. AC Milan greiðir 4,2 milljónir punda fyrir að eiga kauprétt á Walker að þessu tímabili loknu, að sögn Sky á Ítalíu. Walker er 34 ára, hefur leikið með City frá 2017 og sex sinnum orðið enskur meistari ásamt því að vinna Meistaradeild Evrópu.