Tónleikar Cantoque Ensemble, Cantoque syngur Hjálmar, á Myrkum músíkdögum í Hallgrímskirkju verða haldnir á morgun, sunnudaginn 26. janúar, klukkan 17. Tónleikarnir eru helgaðir kórtónlist Hjálmars H. Ragnarssonar þar sem hópurinn flytur glænýtt verk sem Hjálmar samdi sérstaklega fyrir kórinn í tilefni tónleikanna. Einnig verða fluttir þættir úr Messu (1989) ásamt fleiri verkum eftir Hjálmar. Á undan tónleikunum ræðir Hjálmar við listrænan stjórnanda hátíðarinnar um tónskáldaferilinn og tilurð þeirra verka sem flutt verða á tónleikunum. Tónskáldaspjallið hefst kl. 16 í Norðursal kirkjunnar.
Er þetta í þriðja sinn sem sönghópurinn helgar tónleika á Myrkum músíkdögum í Hallgrímskirkju íslensku tónskáldi, en árið 2022 flutti hann tónlist Jóns Nordal og í fyrra tónlist Þorkels Sigurbjörnssonar.