Jón Ingi Cæsarsson
Miklar breytingar hafa orðið á póstþjónustu á Íslandi á undanförnum árum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt stjórnarformann fyrirtækisins árum saman og meirihlutinn hefur verið í höndum stjórnarflokkanna. Yfirlýst markmið Sjálfstæðisflokksins hefur verið að selja beri Íslandspóst og líklega hefur það verið með það í huga að tóna niður fyrirtækið, t.d. með því að leggja niður fjölda pósthúsa á landsbyggðinni með tilheyrandi þjónustuskerðingu. Vísað er í kassa í hverju sveitarfélagi, en þeir koma ekki í staðinn fyrir mannað pósthús eða annað í þeim dúr. Það hefur sannarlega ekki styrkt fyrirtækið, en þeir þola illa vind og snjó og alls ekki kulda.
Póstþjónusta er samfélagsþjónusta eins og margoft hefur verið bent á en talað hefur verið fyrir daufum eyrum fráfarandi
...