Missir fullnægingarnautnar er flestum álíka mikið áfall og missir reisnar, við því eru ekki til nein lyf, en sálfræðiviðtöl geta hjálpað.
Ásgeir Rúnar Helgason
Ásgeir Rúnar Helgason

Ásgeir Rúnar Helgason

Blöðruhálskirtillinn hefur það stóra hlutverk í tímgun, ásamt sáðblöðru, að framleiða næringarvökva fyrir sæðisfrumurnar úr pungnum til að synda í. En líffærið er einnig afar mikilvægt fyrir lífsgæði, enda mikilvægur hlekkur í myndun fullnægingar hjá körlum. Vökvinn losnar við örvun lims sem leiðir til krampa sem veita unað. Samhliða unaðskrömpum (fullnægingunni) flæðir næringarvökvinn úr kirtlinum (og sáðblöðrum) niður þvagrásina þar sem hann blandast sæðisfrumum úr pungnum. Þetta gerist allt svo að segja samtímis og því upplifa menn þetta sem einn atburð, en fullnægingin og sáðlátið eru samt í raun tveir atburðir.

Reisn

Til að koma vökvanum með sæðisfrumunum til skila inn í leg konu þarf ákveðna reisn. Full reisn þverr með stígandi aldri og veldur það flestum körlum miklu hugarangri, ekki síst

...