Ragnheiður Torfadóttir fæddist 1. maí 1937. Hún lést 12. janúar 2025.

Útför Ragnheiðar fór fram 27. janúar 2025.

Sveinbjörn Björnsson.

Feður okkar þekktust vel og voru góðir vinir, og faðir minn verkalýðsforinginn var vel kunnugur Ragnheiði, þar sem hún hafði oft aðstoðað föður sinn við að skrifa niður og hreinrita samninga í samningaviðræðum. Faðir minn kom því að máli við Ragnheiði, hvort hún gæti ekki tekið mig í einkatíma í latínunni til þess að hjálpa mér að komast fram úr þessum tyrfnu textum og undirbúið mig undir próf. Það var auðsótt mál, og ég sótti einkatíma til hennar á heimili þeirra Þórhalls, sem um þær mundir var á Grenimelnum, og kynntist þá fjölskyldunni í leiðinni jafnt sem

...