Eyjólfi Ó. Eyjólfssyni líður eins og nútíma Sýsífosi, en refsingin sé ekki að velta steini endalaust upp sömu brekkuna, heldur skafa snjó aftur og aftur af sama bílnum í endalausri ofankomu: Í gærdag var hreinsunin hafin og skrjóðurinn vandlega…

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Eyjólfi Ó. Eyjólfssyni líður eins og nútíma Sýsífosi, en refsingin sé ekki að velta steini endalaust upp sömu brekkuna, heldur skafa snjó aftur og aftur af sama bílnum í endalausri ofankomu:

Í gærdag var hreinsunin hafin

og skrjóðurinn vandlega skafinn

svo merlaði á,

en í morgun hann lá

í fjallhárri fanndyngju grafinn.

Björgvin Rúnar Leifsson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Reyktur svínaskanki á borðum í Portúgal eða „pernil de porco fumado“. Hann segir dulítið mál að ríma við -ado, en sem betur fer sé til portúgölsk tónlist sem kölluð er „fado“:

...