Laugarásbíó, Smárabíó og Sambíóin Wolf Man ★★½·· Leikstjórn: Leigh Whannell. Handrit: Leigh Whannell og Corbett Tuck. Aðalleikarar: Christopher Abbott, Julia Garner, Sam Jaeger og Matilda Firth. Bandaríkin, 2025. 103 mín.
kvikmyndir
helgi snær
sigurðsson
Úlfamaðurinn svonefndi er nú kominn í bíó í enn einni Hollywood-endurgerðinni, þeirri nýjustu í svokallaðri endurræsingu (e. reboot) klassískra hrollvekja myndversins Universal. Af fyrri slíkum endurræsingum má nefna The Invisible Man frá 2020 og The Mummy frá 2017 og nú er það Wolf Man.
Úlfamaðurinn hefur sumsé verið endurræstur, enn og aftur, og litlu við hann bætt. Hann kom fyrst við sögu í hrollvekju Universal frá árinu 1941 og sá úlfur þykir í dag heldur spaugilegur og lítið hræðilegur. Meira þarf til að hræða fólk nú, árið 2025, og það tekst svo sem þokkalega í þessari kvikmynd Leighs Whannells. Hún er sæmileg afþreying sem skilur lítið sem ekkert eftir sig að áhorfi loknu.
...