Grindavík Ena Viso kom til Njarðvíkur fyrir tímabilið 2023-24.
Grindavík Ena Viso kom til Njarðvíkur fyrir tímabilið 2023-24. — Morgunblaðið/Karítas

Danska landsliðskonan Ena Viso er gengin til liðs við körfuknattleikslið Grindvíkinga eftir að hafa spilað með Njarðvík í hálft annað tímabil. Í síðustu viku tilkynntu Njarðvíkingar að samningi við Enu hefði verið sagt upp. Ena skoraði ríflega 11 stig í leik að meðaltali fyrir lið Njarðvíkinga. Þar með eru þrír nýir leikmenn komnir til Grindavíkur en Daisha Bradford frá Bandaríkjunum og Mariana Duran frá Spáni hafa einnig bæst í hópinn.