Noémie Merlant er ein athyglisverðasta leikkona og leikstjóri Frakklands um þessar mundir. Mynd hennar Konurnar á svölunum var sýnd á Frönsku kvikmyndahátíðinni, sem er nýlokið. Myndin gerist í hitabylgju og er rússibani fýsna, ofbeldis, vináttu og tilfinninga
Stjarna Noémi Merlant er margt til lista lagt.
Stjarna Noémi Merlant er margt til lista lagt. — AFP/Valery Hache

Karl Blöndal

Noémie Merlant er ein athyglisverðasta leikkona og leikstjóri Frakklands um þessar mundir. Mynd hennar Konurnar á svölunum var sýnd á Frönsku kvikmyndahátíðinni, sem er nýlokið.

Myndin gerist í hitabylgju og er rússibani fýsna, ofbeldis, vináttu og tilfinninga.

Ofbeldi karla á hendur konum er rauði þráðurinn, en hér svara konurnar fyrir sig.

Merlant var gestur hátíðarinnar og sat fyrir svörum að sýningu lokinni á laugardag.

Þar lýsti hún hvernig sagan sprytti af hennar reynslu af heimi þar sem karlar beita ofbeldi – innan hjónabands og utan – en gangast ekki við því.

Hún hefði átt

...