Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Umræða um fjármál stjórnmálaflokka hefur reglulega blossað upp, enda snertifletir fjármála og stjórnmála viðkvæmir, og vel þekkt víða um veröld að þeir geta boðið heim hættu á spillingu.
Þess vegna eru í öllum ríkjum einhvers konar varnaglar slegnir og iðulega töluvert regluverk til þess að koma í veg fyrir að eitthvað misjafnt geti átt sér stað og stjórnmálaflokkar eða stjórnmálamenn séu í vasanum hjá hagsmunaöflum, veskisvasanum.
Eftir sem áður kostar að reka stjórnmálaflokka, bæði hvað varðar reglulegan rekstur á flokksskrifstofum, greiningar og stefnumótun, útgáfu og áróður, að ógleymdum kosningabaráttum, sem kosta skildinginn, hvað sem líður fórnfúsu sjálfboðaliðastarfi flokksfélaga við stólaburð, kökubakstur og útburð
...