Forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, greindi frá því á sunnudagskvöldið að Norðurlöndin stæðu ávallt saman í varnar- og öryggismálum, en hún hélt þá óformlegan fund með Alexander Stubb Finnlandsforseta og þeim Jonas Gahr Støre og Ulf Kristersson, forsætisráðherrum Noregs og Svíþjóðar, og bauð þeim til kvöldverðar á heimili sínu.
Ræddu leiðtogarnir meðal annars þá stöðu sem komin er upp í málefnum Grænlands í ljósi þess áhuga sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sýnt á því að eignast landið. Tjáði Trump fjölmiðlum á laugardaginn að hann teldi að Bandaríkin „myndu fá Grænland“, jafnvel þótt landið sé ekki til sölu, og Grænlendingar vildu tilheyra Bandaríkjunum.
Frederiksen nefndi ekki Grænlandsmálið berum orðum í yfirlýsingu sinni um fundinn, en sagði að leiðtogarnir fjórir skildu allir „alvöru
...