Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Áformað var að tvö uppsjávarveiðiskip, Polar Ammassak og Aðalsteinn Jónsson, færu til loðnuleitar í gærkvöldi. Þetta sagði Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann sat þá ásamt skipstjórum sínum og fulltrúa Hafrannsóknastofnunar yfir korti og leitarlínum við að skipuleggja framhald loðnuleitar.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum Hafrannsóknastofnunar, sem kunngjörðar voru fyrir helgi, mældist ekki nægjanlegt magn loðnu í leiðangri sem Árni Friðriksson rannsóknarskip Hafró tók þátt í ásamt þremur uppsjávarveiðiskipum, Polar Ammassak, Heimaey og Barða. Leitað var norður og austur af landinu og fundust aðeins um tveir þriðju hlutar þess magns sem mældist í september 2024. Tók Hafró fram að eftir ætti að ljúka leit Árna
...