Ólöglegur Sekt Víkings nemur alls 240.000 krónum vegna Stígs.
Ólöglegur Sekt Víkings nemur alls 240.000 krónum vegna Stígs. — Ljósmynd/Víkingur

Knattspyrnusamband Íslands hefur sektað Víking úr Reykjavík um 120.000 krónur fyrir að tefla fram ólöglegum leikmanni í leik liðsins gegn Leikni úr Reykjavík í Reykjavíkurmótinu á dögunum. Stígur Diljan Þórðarson gekk til liðs við Víking í desember en fær ekki leikheimild fyrr en 5. febrúar. Víkingar hafa þó teflt honum fram í þremur síðustu leikjum sínum í mótinu og voru sektaðir um 60.000 fyrir fyrsta leikinn og sömuleiðis annan leikinn.