Unnu Valskonur slógu Málaga frá Spáni út í 16-liða úrslitunum.
Unnu Valskonur slógu Málaga frá Spáni út í 16-liða úrslitunum. — Morgunblaðið/Hákon

Báðir leikir Vals og Slavia Prag frá Tékklandi í átta liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handknattleik fara fram á Hlíðarenda. Samkvæmt heimasíðu evrópska handknattleikssambandsins fer fyrri leikurinn, heimaleikur Vals, fram 22. febrúar klukkan 16 og sá síðari, heimaleikur Slavia, á sama stað 23. febrúar klukkan 16. Haukar munu hins vegar leika á hefðbundinn hátt gegn öðru tékknesku liði, Hazena Kynzvart, í sömu keppni, heima og heiman.