Guðmundur Guðmundsson og Karólína Guðmundsdóttir fæddust 28. janúar 1955 í Reykjavík. Þau áttu heima í Njarðvík og Reykjavík þar til fjölskyldan flutti í Garðahreppinn, að Gimli við Álftanesveg, árið 1960, sem eru æskuslóðir þeirra systkina. Þau eru bæði búsett á Flötunum í Garðabæ.
Karólína og Guðmundur voru í sveit á Mælifelli í Skagafirði hjá hjónunum séra Bjartmari Kristjánssyni og Hrefnu Magnúsdóttur, Guðmundur í þrjú sumur og Karólína eitt. Þau gengu í Barnaskóla Garðahrepps og síðan í Gagnfræðaskóla Garðahrepps. Eftir landspróf lá leiðin í Menntaskólann við Tjörnina þar sem Guðmundur fór í eðlisfræðideild en Karólína í náttúrufræðideild.
Eftir stúdentspróf fór Guðmundur í vélaverkfræðinám í Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1981. Árið 1991 fór hann með fjölskyldu sína til Kalamazoo í Michigan í Bandaríkjunum þar sem hann tók
...