„Það er geggjað að vera kominn hingað. Þetta er stórt félag og það er allt rosalega stórt í kringum þetta þannig að maður er kannski aðeins að reyna að venjast og taka þetta allt inn. Mér líður mjög vel og er búinn að koma mér ágætlega fyrir
Pólland
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
„Það er geggjað að vera kominn hingað. Þetta er stórt félag og það er allt rosalega stórt í kringum þetta þannig að maður er kannski aðeins að reyna að venjast og taka þetta allt inn.
Mér líður mjög vel og er búinn að koma mér ágætlega fyrir. Ég er kominn með íbúð þannig að ég er bara mjög sáttur eins og staðan er núna,“ sagði knattspyrnumaðurinn Gísli Gottskálk Þórðarson, sem samdi nýverið við pólska félagið Lech Poznan.
Gísli var keyptur frá Víkingi úr Reykjavík á dágóðan skilding, hálfa milljón evra eða 73,4 milljónir íslenskra króna, og skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning. Hann er búinn að koma sér vel fyrir í Poznan.
...