Gengi Akkur metur Íslandsbanka hærra en gengi bréfa hans á markaði.
Gengi Akkur metur Íslandsbanka hærra en gengi bréfa hans á markaði. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Alexander J. Hjálmarsson hjá Akkur – Greining og ráðgjöf hefur gefið út nýtt verðmat á Íslandsbanka. Þar kemur fram að verðmat hans á bankanum sé markgengi í lok árs 2024 upp á 164 kr. á hlut. Bjartsýnni spá hans er allt upp í 182 kr. á hlut. Hér gerir Alexander ráð fyrir 10,7% ávöxtunarkröfu eigin fjár og 3,5% eilífðarvexti.

Samkvæmt þessu er markaðurinn töluvert undirvigtaður enda gengi bankans á markaði nú um 122 kr. á hlut.

Í spánni er gert ráð fyrir að arðgreiðslur og endurkaup eigin bréfa verði töluverð á næstu 3 árum eða um 45% af markaðsvirði.

„Ég tel bæði Arion banka og Íslandsbanka mjög áhugaverða fjárfestingakosti þegar horft er á áhættu vegna væntrar ávöxtunar þar sem þeir eru með gríðarlega mikið umfram eigið fé sem þeir vilja skila til hluthafa. Þegar

...