50 ára Ómar er Reykvíkingur, ólst upp í Bökkunum í Breiðholti en býr núna í Flórens á Ítalíu. Hann er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands og vinnur í grafíkdeildinni hjá RÚV. Ómar var í hljómsveitinni Quarashi og áhugamálin eru kvikmyndir og tölvuleikir.


Fjölskylda Eiginkona Ómars er Nanna Þórdís Árnadóttir, f. 1971, nemi í innanhússarkitektúr í Flórens. Dætur þeirra eru Alex Emma, f. 2013, og Lotta Anika, f. 2016. Börn Nönnu frá fyrra hjónabandi eru Óliver Breki, Guðbjörg Sunna og Sigurður Árni. Foreldrar Ómars eru hjónin Erla Sigurbergsdóttir, f. 1945, og Haukur Már Haraldsson, f. 1943, búsett í Reykjavík.