Ingi Freyr Vilhjálmsson
Ingi Freyr Vilhjálmsson

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari féllst á dögunum á þá kröfu Páls Steingrímssonar skipstjóra, brotaþola í byrlunarmálinu, að einn þátt málsins skyldi rannsaka til þrautar. Um annað væri úr þessu ekki hægt að komast að hinu sanna.

Staðfest var að rétt hefði verið að hætta rannsókn á ætluðum brotum eða aðild fjölmiðlafólksins Aðalsteins Kjartanssonar, Arnars Þórs Ingólfssonar, Arnars Þórs Þórissonar, Þórðar Snæs Júlíussonar, Inga Freys Vilhjálmssonar og Þóru Arnórsdóttur, þau neituðu að tjá sig um sakarefni og þar við sæti.

En greinargerð lögreglu um fjölmiðlaþáttinn, fréttirnar sem fengust úr stolna símanum meðan eigandinn lá milli heims og helju, er athyglisverð: „Þessar fréttir sem skrifaðar voru upp úr spjallþráðum og öðru innihaldi símans voru að mati embættisins á engan hátt þannig að þessi hegðun væri réttlætanleg

...