— AFP/Wojtek Radwanski

Þess var minnst í gær að áttatíu ár voru liðin frá því að Rauði herinn frelsaði fangana í útrýmingarbúðum Þjóðverja í Auschwitz í Póllandi, en 27. janúar er jafnframt alþjóðlegur minningardagur um helför nasista gegn gyðingum.

Athafnir til minningar um helförina fóru fram víða um Evrópu, en Andrzej Duda Póllandsforseti lagði kransa við Auschwitz um morguninn ásamt nokkrum þeirra sem lifðu dvölina í búðunum af.

Um kvöldið kom fjöldi fyrirmenna og þjóðarleiðtoga til búðanna til þess að taka þátt í sérstakri minningarathöfn, þar sem þeir fengu að hlýða á vitnisburð fjögurra fanga, sem komust lífs af, um helförina.

Einn þeirra, hinn 98 ára gamli Marian Turski, fordæmdi hið aukna gyðingahatur sem nú sæist í heiminum og sagði að sýna þyrfti hugrekki gagnvart þeim sem vildu

...